sunnudagur, 31. ágúst 2008

Frumsýning




Jæja, þá var frumsýningin í gær og alveg fullt hús. Þetta var æðisleg sýning og allt gekk rosalega vel. Krakkarnir voru í stuði og gerðu þetta af fullum krafti. Síðan var skálað í mjólk og súkkulaðikökum. Halli og Gói (fyrrverandi óvitar) mættu á svæðið og hlógu manna mest og það var frábært að heyra í þeim út í sal. Eftir það var ástarganga hérna á Ak og flugeldasýning og karlakór á bát og fullt að gerast. Eftir það fórum við á Græna hattinn þar sem Halli og Gói spiluðu lög. Mikið stuð og allir enduðu á dansgólfinu. Síðan ætluðum við að halda áfram á næsta bar en ég fór bara heim. Fékk skipun frá fallegum manni í Reykjavík að ég ætti að fara heim, annars myndi ég sjá eftir því í dag. Og ég er mjög glöð núna, enda sýning kl. 18 og þá er ekki gaman að vera timbraður.

Set hér myndir af Sunnu og Sigyn sem eru að vinna í leikhúsiu og eru svo sætar, góðar og duglegar. Systir hans Einars kom í heimsókn til að sjá strákinn. Þau eru ekkert smá lík í útliti eins og þið kannski sjáið.
Jæja...nú er ég að fara sigla inn í viku 3 hérna og þetta líður bara ansi hratt....bráðum eru jólin bara komin...er það ekki? Sakna ykkar samt alveg fullt auðvitað.

laugardagur, 30. ágúst 2008

Óvænt heimsókn

Jæja, nú er ég bara komin heim og upp í rúm á föstudagskvöldi. Alveg að farast úr þreytu. Generalprufan gekk alveg svakalega vel og það var alveg fullt af fólki mætt til að horfa. Mjög gaman að fá loksins áhorfendur. Þegar sýningin var búin þá kom bara allt í einu Addi bakvið. Þá kom hann bara svona óvænt á sýninguna. Ég hafði ekki séð hann í salnum. Vá hvað mér þóttir vænt um það og hvað mér brá!! Síðan fengum við okkur að borða og kíktum aðeins á Karó. Ég náði hálfum bjór en var þá næstum því sofnuð ofan í borðið. Hann fór svo upp á Mývatn að veiða. Á morgun er Akureyrarvaka (svona menningarnótt) og það er nóg að gerast allan daginn og annað kvöld. Hjaltalín, Bubbi, Megas, Halli og Gói, myndlist, gjörningar og fleira. Ég ætla að sofa smá út og fara svo niðri í bæ (beint fyrir utan hurðina mína) og drekkja mér í menningu og sýna svo frumsýninguna með stæl. Verð nú örugglega hressari annað kvöld. :)
Það er bara ansi gott að vera á Akureyri.

fimmtudagur, 28. ágúst 2008

Ekki drekka daginn fyrir sýningu!

Bara að segja ykkur það...svona góð regla. Oj...ég hélt að ég myndi bara ekki hafa það upp í leikhús ég var svo þreytt þegar ég skreið fram úr. Mér tókst að gleyma textanum mínum í 2 skipti og var bara almennt eins og fáviti. En það koma áhorfendur á morgun og djöfull verð ég góð þá. Var að koma heim og ætla bara að vera heima. Annars get ég ekki kvartað yfir félagslífinu hérna. Maður er bara að hafna tilboðum hægri vinstri vegna anna. Svei mér þá.
Börnin sem leika með mér í sýningunni eru með svo mikla orku að ég svitna eiginlega meira að dansa og fíflast með þeim baksviðs en á sviðinu sjálfu. Þau eru svo miklar dúllur (veit ég hef sagt það áður) að mig langar að taka þau heim með mér. Samt ekki, nema það væri hægt að hækka og lækka í þeim. Einn drengurinn í dag..nánar tiltekið sá sem leikur pabba minn..hélt að ég væri 18 ára þegar ég spurði hann. En það sem er sætara er að hann var bara að segja það til að hrósa mér...hélt að ég yrði glöð. Sem ég varð.


Hér eru myndir síðan af æfingu í síðustu viku. Fékk frí í dag til 5 og við fórum alveg hlaupandi á barinn við þær fréttir. Það mættu allir nema Jósa sem hljóp alla leið til Rvk. Mjög gaman og allir enduðu heima hjá okkur í Trivial. Mig minnir að ég hafi tapað. Ætla fara kaupa dót og pilla mér í ræktina. Hvað er að Ólafi að velja ekki Hannes í Landsliðið? Þetta er hneysli og við töpum örugglega fyrir norsurunum út af þessum mistökum. Alltaf þegar ég byrja að skrifa á þetta blogg mitt man ég aldrei það sem ég var búin að ákveða að skrifa. Mér dettur svo margt í hug sem fer bara eitthvað eftir smá stund. En pælið í því...ég gæti verið að skrifa eitthvað skemmtilegt. Hugsið það!
bæ

þriðjudagur, 26. ágúst 2008

Nóg að gera.

Já, þessi Akureyrardvöl mín byrjar ekki alveg eins og ég var búin að sjá hana fyrir. Ég tók bækur með mér, handrit og spólur og sá fyrir mér að ég hefði endalausan tíma til að drepa. En ég er bara alltaf upptekin og mikið að gera hjá mér...tala nú ekki um það þegar ég á heima við hliðina á Akur-Liljunni (háklassa tískuhús) þá getur manni ekki leiðst. Var samt að hugsa um það í dag...svona í alvöru hvað það væri grautfúlt að drekka ekki kaffi. Bæði er ég mjög sibbin og þreytt hérna..og svo eru alltaf allir að fá sér kaffi, eða skjótast út í pásum að kaupa latte eitthvað. Ég var næstum búin að kaupa mér í dag og ég hugsaði með mér ef ég drekk þetta ógeð bara nógu oft gæti mér farið að finnast það gott. En gerði það nú reyndar ekki, tók ekki áhættuna á niðurgangi svona rétt fyrir rennsli. Kannski þegar ég er orðin stór.
Jæja, frumsýning á laugardaginn og ég hlakka rosalega til. Addi, Kiddi og Soffía ætla svo að koma á þrjú sýningu hjá mér á sunnudaginn sem ég er afar þakklát þeim fyrir. Alltaf skemmtilegra að leika fyrir einhvern sem maður þekkir. Ræktin í fyrramálið þannig að ég segi góða nótt. Skal skrifa eitthvað skemmtilegt næst þegar ég er ekki að sofna fyrir framan tölvuskjáinn. Lofa!
ask

mánudagur, 25. ágúst 2008

Fall er farar heill

Jæja, mér tókst það að missa af fluginu mínu í morgun. Frábært! Og ég þakka aftur starfsfólkinu á vellinum fyrir að hleypa mér EKKI um borð! Var frekar pirruð. En var mætt á æfingu kl hálf eitt í staðinn og mér leið ekki vel...allir að bíða eftir mér og við náðum ekki einu sinni að lesa verkið í gegn á fyrsta samlestrinum sem þýðir það að við verðum að halda áfram á morgun. En búin að vera leið yfir þessu í dag og nú er ég hætt. Síðan var rennsli í kvöld á Óvitum og það gekk bara ansi vel. Er mjög þreytt og ætla að skella mér í háttinn. Ræktin kl 7 í fyrramálið...nú er bara harkan sex. Ég skrifa meira á morgun. Og set inn myndir...hahaha, mér líður eins og ég sé hinum megin á hnettinum! Þakk fyrir æðislega helgi. Góða nótt.

fimmtudagur, 21. ágúst 2008

úff hvað ég er södd!



Var að koma heim úr frábæru matarboði hjá Dittu vinkonu minni. Fyrir þá sem ekki þekkja hana þá er hún hjúkrunarkona og vinkona hennar Tinnu. Algjör snillingur! Hún bauð okkur þremenningunum heim til sín áðan og eldaði þvílíkt góðan mat handa okkur. Þar var einnig Rakel, sem er listamaður frá Portúgal og Jóhanna Vala (já, engin önnur en sú sem var í fyrsta idolinu, nema núna er hún ekki með spangir). Eftir matinn fórum við síðan upp á þak og horfðum á hval gera kúnstir sínar fyrir okkur í firðinum. Ég hef bara aldrei séð annað eins! Hann hoppaði bara og hoppaði og þetta var alveg magnað! Voða gott verður. Síðan ætlaði fólk að kíkja á djasstónleika en ég ákvað að fara heim þar sem ég er voða þreytt og södd.
Já, ég var í klippingu í dag og já, ég lít út eins og 5 ára ljóshærður Eiríkur Fjalar. Þetta á víst að láta mig líta út eins og 14 ára....og virkar örugglega. Ég er í alveg frábæru skapi og kannski er það út af því að ég er að koma heim á morgun eða kannski er bara svona gaman hérna. Ég er líka voða spennt fyrir partýinu mínu á morgun sem er niðri í Filmus milli kl. 18-20, endilega kíkið við...og fáið ykkur einn coktail með mér.
Ég var búin að segja ykkur hvað það er gaman í vinnunni minni? en ætla að gera það aftur....það er svo fáranlega gaman í vinnunni minni! Vildi að ég væri þar lengur á daginn, verð það reyndar í næstu viku þegar hitt leikarapakkið kemur og við byrjum að æfa Músagildruna. Þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því.
Að íbúðarmálum þá á ég enþá eftir að leigja út íbúðina mína í bænum þannig ef ykkur dettur eitthvað í hug endilega látið mig vita og ef ekki væri fínt að fá bara pening. Viktor fór að kaupa ísskáp handa okkur í dag á meðan ég var í klippingu. Okkar var bilaður. En við komum honum ekki upp hringstigann upp í eldhús sem er frekar fúlt þannig að hann stendur bara niðrá gagni núna. Þurfum að fá kranabíl til þess að koma honum upp svalirnar upp á 4.hæð...gott að ég er að fara um helgina..:)
Jæja, ætla að fara lúlla og láta mig hlakka til þegar það kemur ýkt sætur fótbrotin strákur að sækja mig á flugvöllinn á morgun. Góða nótt.
ask
æi, var að fara setja inn myndir sem ég tók í dag á æfingu en var að fatta að ég gleymdi snúrunni af myndavélinni heima..kemur eftir helgi.
Hér er samt ein sem ég tók á símann. Þetta er Einar að sjá hvort að hann geti ekki troðið sér í ruslafötuna. Og ég með stutta toppinn minn.

miðvikudagur, 20. ágúst 2008

Húsgögn og matarboð

Lofaði Jóni Þór að vera dugleg að blogga þannig að hér kemur smá. Við fengum húsgögnin okkar send til okkar í morgun og þau eru frekar ljót....haha. Við keyptum þau á Nytjamarkaðnum og þau passa ekkert saman. En við erum samt voða glöð að hafa borð og stóla. Ditta kom í heimsókn til okkar og við borðuðum saman og fórum í leiki (leikinn sem Anna Pála kenndi okkur). Þetta var alveg ferlega gott kvöld og ég er svo ánægð að Ditta kom þar sem ég var búin að vera allt of mikið með karlmönnum....maður talar stundum öðruvísi við stelpur. Hún verður hér út ágúst og ætlar að bjóða okkur heim til sín á morgun í mat. Ég fer í klippingu og litun á morgun og planið er að klippa á mig beinan barnalegan topp þar sem ég leik stelpu sem er 15 ára. Vona að það verði í lagi! Ég er farin að hlakka til að koma heim um helgina þrátt fyrir að allt sé alveg frábært hérna. Samt svoldið mikið af túristum fyrir minn smekk. Jæja, ætla að skella mér í háttinn og skrifa meira á morgun. Góða nótt dúllurnar mínar.

þriðjudagur, 19. ágúst 2008

Jæja, var að koma heim úr annari verslunarferð. Við keyptum borð inn í eldhús, borð inn í stofu, spegil, box, skiptilykil og stóla. Þetta verður voða fínt og kósý hjá okkur eftir svona viku. Vorum að tengja netið og heimasímann, hann verður komin í gagnið annaðkvöld. Síminn hjá okkur er 466-2280. Ég þarf að hlaða símann fyrst í 12 tíma.
Var að hugsa um það í dag hvernig blogg þetta ætti að vera. Hvort ég ætti að skrifa eitthvað sniðugt eða bara segja basic fréttir af mér og ég held að ég geri það bara. Það er einfaldara og styttir mér stundir.
Já, fór á Karólínu í gærkvöldi (barinn sem ég hékk á einu sinni í 4 mánuði) og þar hefur nákvæmlega ekkert breyst nema myndirnar á veggnum og komin ný þjónastelpa. Reyndar voru öll borð þétt setin (síðast vorum við yfirleitt ein) þannig að það kom skemmtilega á óvart. Kannski springa Akureyringar út á sumrin og skríða svo aftur inn í holurnar sínar í september. VONA EKKI!!
Vinnan mín er æði! Rosalega er gaman að vinna með þessum börnum..eins og mér leist nú ekkert á það fyrst! Mikil orka og maður sogast alveg inn í hana. Ein stelpan kom til mín í dag (ég hafði aldrei talað við hana áður) og settist ofan á mig. Svo sagði hún "Hæ, ég heiti Sólrún Svava (7 ára) og ég hef séð þig í Fjarðarkaupsauglýsingunum." Mér brá smá og en síðan sat hún bara hjá mér og spjallaði og spjallaði....mig langaði að éta hana hún var svo sæt. Hún leikur ömmuna í leikritinu. Jæja, ég hef greinilega ekkert að segja síðan í gær...jú, nema eitt sem ég var að muna. Ég sá hvali í dag. Við sáum þá út um gluggann á leikhúsinu þar sem þeir hoppuðu og snéru sér fyrir okkur. Alveg magnað! Já há.

mánudagur, 18. ágúst 2008

Komin og byrjuð að vinna.

Jæja, nú er ég komin til Ak og það var tekið vel á móti mér og ég var sótt á völlinn. Ég kom aðeins of seint á æfingu og var frekar stressuð þegar ég opnaði hurðina inn í leikhúsið. Þau voru öll byrjuð á söngæfingu með Jóni Ólafs og ég var alveg gáttuð að heyra þessi litlu börn syngja alveg eins og englar. Síðan var skellt á mig mic-i og ég fór upp á svið og átti að syngja lagið mitt. Ég þurfti að vera með textann mér til stuðnings. Hélt að ég myndi kúka á mig fyrir framan öll börnin og allt starfsfólkið en börnin voru æði og brostu til mín og ég hætti alveg að hugsa um kvíða...síðan var restin af deginum alveg frábær. Mikil stuð og þetta verður æðislegt leikrit. Algjört ævintýri...
Eftir vinnu fórum við (Viktor og Einar) í allsherjar verslunarferð sem tók marga tíma og reyndi á taugarnar mínar... fyrir þá sem þekkja mig er ég ekki mjög óþolinmóð í búðum. Einar skellti sér á síma sem kostaði 60 þúsund og ég hneyslaðist smá yfir því, sérstaklega eftir að ég komst að því að leðurjakkinn hans kostaði 110 þúsund. Greinilega vel borgað að vera leikari. En þessi ferð hafðist og við fórum heim og reyndum að gera íbúðina okkar kósý og koma okkur fyrir.
Þegar það var búið fékk ég smá heimþrá kast og táraðist í hvert skipti sem einhver hringdi. Sakna ykkar allra svo mikið...sko þótt að ég sé nýfarin þá veit ég hvernig þetta verður og þess vegna var ég eitthvað lítil í mér....EN það er búið núna. Fórum svo að borða og núna líður mér miklu betur. Sit á Kaffi Karólínu og er að kíkja á netið. Við fáum svo net og heimasíma á morgun heim til okkar. Það verður betra. Ótrúlegt hvað maður er háður þessu. Jæja, við sjáumst vonandi öll á laugardaginn milli 18-20 í Filmus. Þar er búið að skipuleggja kveðjupartý handa mér...Jón Þór er sko mesta æði í heimi. Ætla snemma að sofa.
bæjó

föstudagur, 15. ágúst 2008

Einn tveir og nú...

...er ég bráðum að fara flytja til Akureyrar og að því tilefni ætla ég að prófa að blogga.
Fyrsta bloggið mitt kemur væntanlega á mánudaginn...
kv. ask