þriðjudagur, 30. september 2008

oj

Ligg upp í rúmi með kvef og horfi út um gluggann á snjóinn. Já, þið lásuð rétt! Get engu við þetta bætt.

miðvikudagur, 24. september 2008

Jæja, er búin að vera löt við að skrifa. Hér er alltaf nóg að gera og ég var að koma heim af pub-quiz sem var alveg stórskemmtilegt að vanda.
Fórum út í Hrísey í gær þar sem Alli Bergdal tók þvílíkt vel á móti okkur og keyrði okkur um í vagni sem var fastur við traktorinn hans. Síðan talaði hann allan tímann og sagði okkur alveg stórmerkilega hluti um eyjuna...kannski var það ekki allt alveg satt en það skiptir nú minnstu máli. Síðan fórum við í búð, hvalasafn og inn á gamalt heimili sem er búið að breyta í safn. Eftir það fórum við heim til Alla og þar fengum við Hvannarrótarsúpu sem hann bjó til. Þetta var alveg frábær ferð og við vorum öll rjóð og útitekin eftir hana.

Við komust loksins inn á sviðið í dag til að æfa. Við höfum verið að æfa í dansskóla hingað til því að það þurfti að byggja leikmynd og rífa þá gömlu niður og við máttum ekki vera fyrir smiðunum. Það var mikill munur að komast á sviðið og þetta er allt farið að taka á sig mjög góða mynd. Ég hlakka alltaf til þess að mæta í vinnuna. Góður mórall og frábær leikstjóri. En núna bíður mín vinnuskýrsla til þess af fylla út fyrir morgundaginn þannig að ég ætla að demba mér í það mál núna.
Mamma er svo að fara frumsýna mydina sína "Þetta kalla ég dans" á föstudaginn þannig að ég sé ykkur um næstu helgi...vá fimmtudagur á morgun. Tíminn líður svo hratt!
góða nótt
ask

mánudagur, 15. september 2008

Lítill engill að koma í heiminn

Linda og Peter vinir mínir voru að eignast litla stelpu og ég óska þeim innilega til hamingju með það. :)

föstudagur, 12. september 2008

Helgin er að koma og ég fæ heimsókn

Var búin að ákveða að segja ykkur frá:

-Fool for love sýningunni og partýinu í gær
-Pub quizinu
-og að ég kem heim næstu helgi
-að ég er komin með matarást á Jósu og mig langar alltaf að hún sé hjá mér
og einnig ætlaði ég að setja inn myndir sem ég tók á æfingu í gær.

En hef ekki tíma núna, seinna.
ask

p.s ef einhver kann að setja svona teljara inn á síðuna hjá mér þá má hinn sami endilega hafa samband við mig.

sunnudagur, 7. september 2008



Það eru nokkrir hlutir á Akureyri sem eru einfaldlega æðislegir.

1. Brynjuísinn er alveg fáranlega góður.
2. Kurteisir bílstjórar, hér er hægt að ganga út á götu og vera viss um það bílarnir stoppi fyrir þér.
3. Besta og flottasta sundlaug á landinu. Gott að synda þar og pottarnir unaðslegir.
4. Næstum hvar sem maður er blasir við stórbrotið útsýni með fjöllum og fallegum litum.
5. Gott leikhús að sjálfsögðu.

Svo er annað sem mætti vera betra.

1. Akureyringar er svoldið lokaðir þegar kemur að utanbæjarpakki, kannski nennir það ekki að kynnast okkur því það veit að við munum að lokum fara?
2. Brekkur...úff púff. Finnur fyrir því að hvert sem maður gengur er maður oftast að ganga upp í móti.
3. Opnunartími verslanna mætti vera lengri.
4. Út í hött dýrt að fljúga hingað.
5. Hér eru göturnar ekki saltaðar, þannig að það getur verið eftitt að keyra og ganga hér um í t.d. janúar.

Annars er helgin búin að vera fín. Sýningar föst, laug og sunnud. Fool for love krakkarnir, Svenni, Þóra og Maggi komu og voru að byrja að æfa sig í Rýminu. Þau munu sýna hér næstu 2 eða 3 helgar og uppselt á allt hjá þeim sem er frábært. Svenni og Maggi komu á sýninguna í gær og fannst voða gaman.
Oj, ég er með bólgið auga / augnlok og ég held að það sé út af sminkinu sem maður er að troða í andlitið á sér eða bara þreyta. Ég tók 2 myndir í gær á Karólínu (kaffihúsið sem við erum alltaf á), þetta er ég og Jósa sem var að koma beint úr réttum með fjölskyldunni sinni. Og Einar, Svenni og Maggi.

Hinn yndislegi, óviðjafnanlegi, fallegi, skemmtilegi og ómissandi vinur minn hann Jón Þór á afmæli í dag. Til hamingju með það og ég vildi að ég gæti komið og knúsað þig. Gummi gerir það kannski fyrir mig.

miðvikudagur, 3. september 2008

Eina góða við daginn í dag var að mér var sagt að ég væri með sætan rass.

Var alveg í skýjunum í 2 tíma.

Ætla að hrósa einhverjum á morgun.

mánudagur, 1. september 2008

Sjónvarpsgláp og annað

Ég var að fatta að ég er ekki búin að horfa á sjónvarpið nema í klukkutíma alveg síðan ég kom hingað. Það var geðveikur Dr. Phil þáttur. Eins og sumir vita eru Dr. Phil og Biggest Loser uppáhalds þættirnir mínir. Og þessi þáttur sem ég sá á sunnudaginn fjallaði um offitusjúklinga. Þannig að ég náði tveim flugum í einu höggi og djöfull var þetta góður þáttur. Sá hann einhver? Oj, ein gellan var búin að grennast um 80 kg og húðin á henni var alveg ónýt. En henni var gefin ókeypis skurðaðgerð...og þá táraðist ég. Klikkað dæmi. En það er skrýtið að þegar maður hættir að horfa á sjónvarpið hvað maður hefur mikinn tíma allt í einu og fáranlegt hvað maður saknar þess ekkert. Mér er bara allt í einu alveg sama hver er að vinna Britans next model svo ég taki dæmi. Nú er bara að byrja lesa aðeins meira...virkja þessar heilasellur.

Annars er skítaveður hérna, rigning og rok sem er ekki gaman. Úlpan verður tekin fram fljótlega.

Er ekki að fara sýna fyrr en á föstudaginn þannig að vikan er fremur róleg. Það er samt bandý annað kvöld og pub-quiz á miðvikudaginn. Fór í ræktina í morgun og fór á viktina. Ég er búin að þyngjast um 1 kíló frá því ég kom og ég veit að það er af því að ég er alltaf að fá mér kvöldmat um 10 leytið á kvöldin þegar ég er búin að vinna. Nú verður breyting þar á. Tók nesti með mér í dag og ætla skipuleggja aðeins hvenær ég borða, svo ég fatti það ekki seint á kvöldin að ég sé að "drepast" úr hungri.

Ég stefni á að koma heim eftir mánuð þannig að við verðum að gera eitthvað skemmtilegt þegar ég kem heim...Eva heldur kannski partý heima hjá sér?