miðvikudagur, 20. ágúst 2008

Húsgögn og matarboð

Lofaði Jóni Þór að vera dugleg að blogga þannig að hér kemur smá. Við fengum húsgögnin okkar send til okkar í morgun og þau eru frekar ljót....haha. Við keyptum þau á Nytjamarkaðnum og þau passa ekkert saman. En við erum samt voða glöð að hafa borð og stóla. Ditta kom í heimsókn til okkar og við borðuðum saman og fórum í leiki (leikinn sem Anna Pála kenndi okkur). Þetta var alveg ferlega gott kvöld og ég er svo ánægð að Ditta kom þar sem ég var búin að vera allt of mikið með karlmönnum....maður talar stundum öðruvísi við stelpur. Hún verður hér út ágúst og ætlar að bjóða okkur heim til sín á morgun í mat. Ég fer í klippingu og litun á morgun og planið er að klippa á mig beinan barnalegan topp þar sem ég leik stelpu sem er 15 ára. Vona að það verði í lagi! Ég er farin að hlakka til að koma heim um helgina þrátt fyrir að allt sé alveg frábært hérna. Samt svoldið mikið af túristum fyrir minn smekk. Jæja, ætla að skella mér í háttinn og skrifa meira á morgun. Góða nótt dúllurnar mínar.

1 ummæli:

Anna Pála sagði...

Frábært að þú sért byrjuð að blogga krúttan mín! Mun setja þig strax í favorites hjá mér. Mikill heiður að koma fyrir í þessari færslu :-)