Bara að segja ykkur það...svona góð regla. Oj...ég hélt að ég myndi bara ekki hafa það upp í leikhús ég var svo þreytt þegar ég skreið fram úr. Mér tókst að gleyma textanum mínum í 2 skipti og var bara almennt eins og fáviti. En það koma áhorfendur á morgun og djöfull verð ég góð þá. Var að koma heim og ætla bara að vera heima. Annars get ég ekki kvartað yfir félagslífinu hérna. Maður er bara að hafna tilboðum hægri vinstri vegna anna. Svei mér þá.
Börnin sem leika með mér í sýningunni eru með svo mikla orku að ég svitna eiginlega meira að dansa og fíflast með þeim baksviðs en á sviðinu sjálfu. Þau eru svo miklar dúllur (veit ég hef sagt það áður) að mig langar að taka þau heim með mér. Samt ekki, nema það væri hægt að hækka og lækka í þeim. Einn drengurinn í dag..nánar tiltekið sá sem leikur pabba minn..hélt að ég væri 18 ára þegar ég spurði hann. En það sem er sætara er að hann var bara að segja það til að hrósa mér...hélt að ég yrði glöð. Sem ég varð.
fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hrafnhildur heldur að ég sé tveggja ára. Mér finnst það meiriháttar ;-)
Lára
var að skoða heimasíðu LA, skrýtið að hafa GSM númer leikaranna á síðunni? Vildi að Akureyri væri aðeins nær Reykjavík svona 2,5 tími að keyra svo ég gæti séð allar þessar sýningar, mjög spennandi allt saman.
Kv Eva
Æi, já vildi það líka Eva mín. En kannski getur þú samt komið og séð eina sýningu ha?
ask
Skrifa ummæli