
Var að koma heim úr frábæru matarboði hjá Dittu vinkonu minni. Fyrir þá sem ekki þekkja hana þá er hún hjúkrunarkona og vinkona hennar Tinnu. Algjör snillingur! Hún bauð okkur þremenningunum heim til sín áðan og eldaði þvílíkt góðan mat handa okkur. Þar var einnig Rakel, sem er listamaður frá Portúgal og Jóhanna Vala (já, engin önnur en sú sem var í fyrsta idolinu, nema núna er hún ekki með spangir). Eftir matinn fórum við síðan upp á þak og horfðum á hval gera kúnstir sínar fyrir okkur í firðinum. Ég hef bara aldrei séð annað eins! Hann hoppaði bara og hoppaði og þetta var alveg magnað! Voða gott verður. Síðan ætlaði fólk að kíkja á djasstónleika en ég ákvað að fara heim þar sem ég er voða þreytt og södd.
Já, ég var í klippingu í dag og já, ég lít út eins og 5 ára ljóshærður Eiríkur Fjalar. Þetta á víst að láta mig líta út eins og 14 ára....og virkar örugglega. Ég er í alveg frábæru skapi og kannski er það út af því að ég er að koma heim á morgun eða kannski er bara svona gaman hérna. Ég er líka voða spennt fyrir partýinu mínu á morgun sem er niðri í Filmus milli kl. 18-20, endilega kíkið við...og fáið ykkur einn coktail með mér.
Ég var búin að segja ykkur hvað það er gaman í vinnunni minni? en ætla að gera það aftur....það er svo fáranlega gaman í vinnunni minni! Vildi að ég væri þar lengur á daginn, verð það reyndar í næstu viku þegar hitt leikarapakkið kemur og við byrjum að æfa Músagildruna. Þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því.
Að íbúðarmálum þá á ég enþá eftir að leigja út íbúðina mína í bænum þannig ef ykkur dettur eitthvað í hug endilega látið mig vita og ef ekki væri fínt að fá bara pening. Viktor fór að kaupa ísskáp handa okkur í dag á meðan ég var í klippingu. Okkar var bilaður. En við komum honum ekki upp hringstigann upp í eldhús sem er frekar fúlt þannig að hann stendur bara niðrá gagni núna. Þurfum að fá kranabíl til þess að koma honum upp svalirnar upp á 4.hæð...gott að ég er að fara um helgina..:)
Jæja, ætla að fara lúlla og láta mig hlakka til þegar það kemur ýkt sætur fótbrotin strákur að sækja mig á flugvöllinn á morgun. Góða nótt.
ask
æi, var að fara setja inn myndir sem ég tók í dag á æfingu en var að fatta að ég gleymdi snúrunni af myndavélinni heima..kemur eftir helgi.
Hér er samt ein sem ég tók á símann. Þetta er Einar að sjá hvort að hann geti ekki troðið sér í ruslafötuna. Og ég með stutta toppinn minn.
2 ummæli:
Þú ert sæt svona 14 ára!
Gott að heyra að það sé stuð í vinnunni og allt sé í góðum gír.
Væri alveg til í kokteil með þér á morgun, en á hann inni.
Bið að heilsa Einari bláberjarassi.
Ég hringdi í heimasímann ykkar í gær, en það var enginn heima.
Heyri í þér eftir helgina og góða skemmtun í Reykjavík!
Lindz +1
Já þú ert ýkt sæt með stutta toppinn Erika Fjalar, og frábært að sé svona gaman hjá þér í vinnunni, knúsknús
Skrifa ummæli