


Hér eru myndir síðan af æfingu í síðustu viku. Fékk frí í dag til 5 og við fórum alveg hlaupandi á barinn við þær fréttir. Það mættu allir nema Jósa sem hljóp alla leið til Rvk. Mjög gaman og allir enduðu heima hjá okkur í Trivial. Mig minnir að ég hafi tapað. Ætla fara kaupa dót og pilla mér í ræktina. Hvað er að Ólafi að velja ekki Hannes í Landsliðið? Þetta er hneysli og við töpum örugglega fyrir norsurunum út af þessum mistökum. Alltaf þegar ég byrja að skrifa á þetta blogg mitt man ég aldrei það sem ég var búin að ákveða að skrifa. Mér dettur svo margt í hug sem fer bara eitthvað eftir smá stund. En pælið í því...ég gæti verið að skrifa eitthvað skemmtilegt. Hugsið það!
bæ
4 ummæli:
Hey slakaðu á þú ert ekki undir einhverri brjálaðri pressu að vera alltaf ógeðslega fyndin og sniðug á blogginu. Mér finnst þetta bara skemmtilegasta blogg án einhverra tilrauna til að vera ofursniðug.
Kv Eva
Sammála síðasta ræðumanni.
OMG, frumsýing á laugardag, Oh, langar svo að koma og sjá. Gangi ykkur vel og góða skemmtun!!
Linda
Frábært blogg kæra nafna! Við Tómas reynum að koma og sjá Óvitana á Akureyri, gangi þér vel
Gaman gaman! Mikið var að þú fórst að blogga aftur :-)
Kv
Lára
Skrifa ummæli