þriðjudagur, 19. ágúst 2008

Jæja, var að koma heim úr annari verslunarferð. Við keyptum borð inn í eldhús, borð inn í stofu, spegil, box, skiptilykil og stóla. Þetta verður voða fínt og kósý hjá okkur eftir svona viku. Vorum að tengja netið og heimasímann, hann verður komin í gagnið annaðkvöld. Síminn hjá okkur er 466-2280. Ég þarf að hlaða símann fyrst í 12 tíma.
Var að hugsa um það í dag hvernig blogg þetta ætti að vera. Hvort ég ætti að skrifa eitthvað sniðugt eða bara segja basic fréttir af mér og ég held að ég geri það bara. Það er einfaldara og styttir mér stundir.
Já, fór á Karólínu í gærkvöldi (barinn sem ég hékk á einu sinni í 4 mánuði) og þar hefur nákvæmlega ekkert breyst nema myndirnar á veggnum og komin ný þjónastelpa. Reyndar voru öll borð þétt setin (síðast vorum við yfirleitt ein) þannig að það kom skemmtilega á óvart. Kannski springa Akureyringar út á sumrin og skríða svo aftur inn í holurnar sínar í september. VONA EKKI!!
Vinnan mín er æði! Rosalega er gaman að vinna með þessum börnum..eins og mér leist nú ekkert á það fyrst! Mikil orka og maður sogast alveg inn í hana. Ein stelpan kom til mín í dag (ég hafði aldrei talað við hana áður) og settist ofan á mig. Svo sagði hún "Hæ, ég heiti Sólrún Svava (7 ára) og ég hef séð þig í Fjarðarkaupsauglýsingunum." Mér brá smá og en síðan sat hún bara hjá mér og spjallaði og spjallaði....mig langaði að éta hana hún var svo sæt. Hún leikur ömmuna í leikritinu. Jæja, ég hef greinilega ekkert að segja síðan í gær...jú, nema eitt sem ég var að muna. Ég sá hvali í dag. Við sáum þá út um gluggann á leikhúsinu þar sem þeir hoppuðu og snéru sér fyrir okkur. Alveg magnað! Já há.

2 ummæli:

Linda og Peter sagði...

Vei, vei. Gaman að þú sért að blogga gullið mitt.
Hlakka til að fyglgjast með þér og gangi þér vel í vinnunni!
Sakna þín ótrúlega mikið og veit alveg hvernig þér líður.
Knús og kram
Þín Linda og bumbukrílið.

Unknown sagði...

Sástu hvali - ertu viss um að þetta hafi verið hvalir - ekki bara einhverjir Akureyringar að skokka framhjá leikhúsinu?