fimmtudagur, 27. nóvember 2008

Já, fyrirgefðu Ásta mín. Ég er bara búin að vera dugleg að fara í ræktina og sofna þá aðeins fyrr. En nú kemur eitthvað fyrir þig að lesa. Í fyrsta lagi er brjálað veður hérna í dag. Í gærkvöldi þegar ég kom heim var engin snjór á götunum og bara þetta fína veður. Ég vaknaði svo í morgun og fór í opnu svörtu skóna mína og fékk sjokk. Það er bara snjór út um allt og alveg skítaveður. Ég var að koma heim núna og er komin upp í rúm að hlýja mér. Brrr! og oj bara. Helgin var æði. Rakel, Konni og Flóki komu í heimsókn og sáu báðar sýningarnar mínar. Flóki litli fór meira að segja aftur á seinni barnasýninguna líka alveg aleinn, algjör hetja. Eftir laugardagssýninguna skelltum við okkur á Græna Hattinn þar sem Baggalútur var að syngja og það var svo jólalegt og skemmtilegt. Við mættum snemma og náðum borði fremst. Mér finnst Baggalútur svo jólaleg hljómsveit!
Í vikunni er bara búið að vera nóg að gera, fór í Bandý á þriðjudagskvöldið og var í marki en fékk því miður á mig 11 mörk. Ég þarf nú að æfa mig aðeins betur í þessari íþrótt en ég gef þessu sjens bara búin að fara 2var sinnum. Í gærkvöldi fór ég út í Hrafnagil en þar á Sunna (sem vinnur í leikhúsinu) heima. Við borðuðum saman og horfðum á sjónvarpið, voða kósý. Ég held bara að stelpurnar á Karólínu séu farnar að spyrja um mig, hef ekki mætt alla vikuna.
En það gengur þvílíkt vel að æfa Falið Fylgi, góður mórall og gleði. Við erum meira að segja að fara renna öllu fyrir hlé í fyrramálið. Þetta er frábært leikrit, mikill húmor en líka sorg. Gaman að vinna með svona flott handrit. Annars er ég bara farin að hlakka svo mikið til að koma heim um jólin. Kannski þurfum við ekki einu sinni að koma til Ak milli jóla og nýárs ef við náum að vinna þá daga af okkur og þá verð ég heima í alveg 10 daga og þá verður gaman. Ætli ég komi ekki bara ca. 21 des held ég og þá get ég keypt jólagjafirnar í bænum og allt.
Vá, ég hef ekki frá neinu spennandi að segja, dagarnir eru allir frekar svipaðir og lítill frítími. Það er búið að jólaskreyta allt hérna og orðið voða jólalegt. Það er t.d. risa jólastjarna fyrir utan gluggann minn sem hangir hérna yfir aðalgötuna. Ég og Sunna ætlum að splæsa á okkur einkaþjálfara í desember. Okkur fannst það svo góð hugmynd í gær og ég fann þessa fínu konu sem ætlar að koma okkur að. Ég hef ekkert betra að gera við peningana mína...haha!
Endilega kommentið þið og segið mér frekar eitthvað slúður úr borginni.
Linda er komin til Reykjavíkur með Leu Dís litlu og ég get ekkert hitt hana sem er alveg glatað en svona er þetta bara. Jósa og Einar fara yfirleitt heim núna á virkum dögum eða eitthvað annað þar sem þau eru bara að vinna um helgar. Þannig að hópurinn er aðeins minni.
Jæja hafið það gott dúllurnar mínar.
Mættuð þið á borgarafundinn sem var í Háskólabíó? Ég sá hann bara í sjónvarpinu. Bara allt að gerast í Reykjavík!!
ask

fimmtudagur, 20. nóvember 2008

Hér kemur liðið hans Sindra:

Sindri:

þjálfari: man ekki...
heilari: oprah
þýðandi:Ýr Bertelsdottir

Markmaður: Chuck Norris
vinstri bak: Helgi Seljan
hægri bak: Einar Örn
bakvörður: Gordon Ramsey
bakvörður: Shean Connery
vinstri kantur: Hemmi Gunn
hægri kantur: Dýri Hreiðarsson
miðjumaður: David Becham
miðjumaður: Ólafur Stefánsson
sóknarmaður: Heidi Klum
sóknarmaður: Donald Trumph

mánudagur, 17. nóvember 2008

Helgin





Já, því miður leið helgin allt allt of hratt. Eva mætti til mín á föstudaginn um 2 leytið og var með mér í vinnunni. Hún náði að sjá rennsli á jólaleikritinu og bara vera með mér þangað til að ég fór að sýna Músagildruna. Það var skemmtilegt og skrýtið að hafa hana allt í einu þarna. Fannst eins og ég þurfti að sýna henni allt...eins og ég væri í úlöndum eða eitthvað! Síðan mætti restin á fyrsta bekk og ég sá þau bara þegar þau voru að klappa. Var mjög stressuð fyrir sýningu og spennt að hitta þau. Eftir sýningu fórum við í íbúðina sem Jón Þór og Gummi voru með í láni. Pizza og kjafta.
Á laugardaginn gerðum við þvílíkan morgunmat hérna í H-100, egg og beikon og kökur og tilheyrandi. Verst var að greyið Jón Þór og Gummi þurftu að fara í súpu beint á eftir og svo beint í pönnukökuboð...eru víst enþá saddir. Á laugardagskvöldið fóru þau að sjá Villa naglbít á tónleikum í höllinni og við mættum bara í partýið eftir tónleikana. Glatað að þurfa að missa af þeim. Laugardagskvöldið var tekið með með trompi og dansað fram á nótt. Oh svo gaman! :) Var alveg með í maganum þegar þau fóru svo á sunnudaginn. Svona eins og að fá pakka og síðan þurfa að skila honum. En eitt er víst, ég á bestu vini sem hægt er að óska sér eða ímynda sér. Og nú er bara næstum því mánuður í jólin. Þetta líður voða hratt.
Gummi fær rokkprik fyrir peysuna sem hann var í á laugardaginn.
Eva fær heiðursprik fyrir að endast lengi.
Ég fæ prik fyrir að koma með eina góða sögu.
Jón Þór fær 3 venjuleg prik fyrir tunguna á sér.
Ásta fær 1 prik fyrir að ná lengst á spjalli og 9 prik fyrir tækni og skemmtihæfileika.

Sindri spurði mig áðan þegar við vorum eitthvað að láta okkur leiðast hvort að ég vildi fara í strákaleik. Og ég sagði auðvitað já. Og þá átti ég að raða upp draumaliðinu mínu í fótbolta. Allt má....og hér er það:
þjálfari: Atli Helgason
nuddari: kínakarlinn á Skólavörðustíg
þýðandi: Gísli Rúnar (nokkur tungumál í gangi)

Markmaður: Hannes Halldórssón (því hann er bestur)
vinstri bak: Sindri Birgisson (getur farið á milli lappana á hinum og dregið að sér athygli)
hægri bak: Matthew McConery (bara fyrir mig)
bakvörður: Auðun Helgason (góður og vinnur vel með Hannesi)
bakvörður: Guðni Bergsson (kann svona gömul og góð trix)
vinstri kantur: Magnús Guðmundsson (getur farið í heljarstökk og þannig)
hægri kantur: Hannes (leikari) (bara góður)
miðjumaður: Dóra María Lárusdóttir (augljóst, kann að spila og ég þekki hana smá)
miðjumaður: Jón Páll Eyjólfsson (getur orðið alveg geðveikur)
sóknarmaður: Davíð Guðbrands (stelpur mæta á völlinn)
sóknarmaður: Ronaldo (sér um að spila fótboltann)

þetta var nú bara það fyrsta sem kom...er strax til í að fara kaupa nýja inn og skipta út. Sindri og Jón Gunnar gerðu líka lið. Ætla að spyrja þá í fyrramálið hvort að ég megi birta þau. Þá gætuð þið kannski sagt hvaða lið þið hélduð að myndi vinna og þannig.

Myndir úr partýinu eftir tónleikana. María Heba og Krissi komu líka á leikritið á laugardaginn. Það var æði að fá þau. Maður er alveg endurnærður!
Góða nótt

miðvikudagur, 12. nóvember 2008



Jæja, fór í leikfimi í dag....stórmerkilegt alveg. Fáranlegt hvað það er erfitt að fara ef maður er ekki búin að fara í langan tíma. Skellti mér svo á james bond beint eftir það. Fínn dagur. En er bara að bíða eftir því að vinir mínir koma um helgina. Hlakka svo mikið til. :)
Þetta eru myndir frá því um helgina á leið á Buff ballið. Stigagangurinn heima.
Góða nótt og ég ætla í ræktina á morgun líka. Besta geðlyf í heimi....í minnsta kosti í mínu tilfelli.

sunnudagur, 9. nóvember 2008

Það var ákveðið að fara út að dansa í kvöld. Við fórum á Sjallan og hljómsveitin Buff var að spila. Var að koma heim og þegar ég var að ganga heim var ég að hugsa um allt sem væri að næturlífinu á Akureyri og hvað mætti betur fara. Og hef komist að þeirri niðurstöðu að það er bara ansi margt. Veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja eða enda. En við dönsuðum í hring og svitnuðum saman og það var voða fjör. Þau eru örugglega ennþá í fullu fjöri með hinum unglingunum en ég ákvað að fara heim, lappir og sál þreytt. Setti hreint á rúmið, bar á mig krem og ætla að sofa eins lengi og ég get á morgun. Ummm....gott að vera í smá fríi. Á reyndar að mæta kl. 2 en samt frí.
Fékk mér pulsu á leiðinni heim og sá konu gráta á Hlöllabátum, ungan strák á bolnum æla og stelpu sem var að rífast við kærasta sinn sem var með rosa hiksta og valtur. Ummm....elska næturlífið.

laugardagur, 8. nóvember 2008

Ef maður passar ekki í þröng há stígvél er gott að leggjast á gólfið og setja lappirnar upp þá passar maður í stígvélin (yfirleitt). Lærði þetta í sumar.
Síðan ef maður heldur að veturinn sé komin og fer að kaupa sér kuldaskó þá oft hættir veturinn við. Sem er bara gott í flestum tilfellum.
Ég fæ stóra heimsókn næstu helgi og hlakka til.
ask

föstudagur, 7. nóvember 2008

Ég veit....ég er heimsins versti bloggari.
En ég hugsa oft um það þegar ég geng til eða frá vinnu hvað ég ætli nú að skrifa um og hvað ég ætli að segja frá þessu og hinu sem kom fyrir. En síðan er ég alltaf komin heim svo seint og þá er ég svo þreytt og bla bla. Hlýt bráðum að fá góðan tíma til að skrifa eitthvað skemmtilegt. En ég er búin að afhenda íbúðina mína. Hlakka til að fá heimsókn bráðum (loksins) frá nokkrum snillinga vinum mínum og er bara hress svona yfir höfuð. Ætla mér að byrja aftur í ræktinni bráðum. Takk fyrir alla hjálpina um daginn, ég á yndislega fjölskyldu og vini...mikið er ég lánsöm.
Góða nótt.
ask