Jæja, nú er ég bara komin heim og upp í rúm á föstudagskvöldi. Alveg að farast úr þreytu. Generalprufan gekk alveg svakalega vel og það var alveg fullt af fólki mætt til að horfa. Mjög gaman að fá loksins áhorfendur. Þegar sýningin var búin þá kom bara allt í einu Addi bakvið. Þá kom hann bara svona óvænt á sýninguna. Ég hafði ekki séð hann í salnum. Vá hvað mér þóttir vænt um það og hvað mér brá!! Síðan fengum við okkur að borða og kíktum aðeins á Karó. Ég náði hálfum bjór en var þá næstum því sofnuð ofan í borðið. Hann fór svo upp á Mývatn að veiða. Á morgun er Akureyrarvaka (svona menningarnótt) og það er nóg að gerast allan daginn og annað kvöld. Hjaltalín, Bubbi, Megas, Halli og Gói, myndlist, gjörningar og fleira. Ég ætla að sofa smá út og fara svo niðri í bæ (beint fyrir utan hurðina mína) og drekkja mér í menningu og sýna svo frumsýninguna með stæl. Verð nú örugglega hressari annað kvöld. :)
Það er bara ansi gott að vera á Akureyri.
laugardagur, 30. ágúst 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Vá, en gaman að fá Adda surprise!!
Ég var einmitt að hlusta á vefútvarp rásar 2 í gær og var alveg komin í gírinn fyrir Akureyrarvöku og frumsýninguna ykkar sem var líka talað um. Svo lítur maður upp frá tölvunni og fattar að maður er ekki bara handan við hornið og heimurinn breytist á sekúndubroti og maður fær sér bara flödebollu eins og ekkert sé sjálfsagðra!
Sendi þér sólarstrauma og hugsa til þín elsku dúllan mín. Er á mega bömmer að sjá þig aldrei á sviði. Geturðu ekki sett um leinó webcam í LA?
Knús til þín
Linda og bumbó
Hlakka líka til að fá skiló að síminn sé kominn í gagnið.
Lindz
Hann er komin í gagnið Linda mín. Addi kom og fór með mig litlu frk. ósjálfbjörgu í búð. Núna get ég hringt í þig.
ask
Skrifa ummæli