föstudagur, 31. október 2008

Var að koma heim og klukkan er orðin eitt. Ég ætlaði að skrifa alveg fullt í kvöld en ég þarf að vinna allan daginn á morgun og sýna tvær sýningar þannig að það er best að ég fari að sofa. Hitti Kristján Frey (Fram félaginn minn) í smástund á kaffihúsi áðan og það var hressandi. Ég ætla að segja ykkur hvað á daga mína hefur drifið um helgina þegar ég fæ tíma.
kv. ask

föstudagur, 24. október 2008

Jæja...

...nú er lífið að færast aftur í fastar skorður. Frumsýningin búin og það gekk bara ljómandi vel hjá okkur. Fólk var ánægt og skemmti sér vel. Nú tekur bara við að sýna 6 sýningar á viku og svo var ég að byrja að æfa jólaleikritið. Ég fór á samlestur á miðvikudaginn og það er langt síðan að ég hef komist í jafn mikið jólaskap. Þetta er alveg fáranlega sætt og jólalegt leikrit. Ég er í fríi í dag til klukkan 18 og ætla að nýta daginn til þess að kúra upp í rúmi, borga reikninga, fylla út vinnuskýrslu og gera ekkert. Það er oft gott.
Á miðvikudagskvöldið tókum ég og Sindri smá skyndiákvörðun og fengum bílinn lánaðan hjá Denna og brunuðum á Laugar til þess að sjá leiksýninguna "Sá Ljóti" en það var smá hálka og við lögðum kannski pínu seint af stað en þegar við komum var búið að læsa og við misstum af sýningunni. Glatað. En við brunuðum bara aftur í bæinn á Karó og svo komu Viggi og co til okkar og við skemmtum okkur mjög vel. Við enduðum hérna heima í H100 í svaka dansi og matarpartý langt fram á nótt. Gott að sletta úr klaufunum á virkum degi...alltaf skemmtilegra.
En hér er veturinn komin og snjór yfir öllu. Nú bíð ég bara eftir að skíðasvæðið opnar og ætla fara vera fastagestur í brekkunum.
Ásta vinkona mín á afmæli í dag og óska henni til hamingju með það.
Annars líður tíminn hérna mjög hratt og mér finnst bara eins og jólin koma á morgun.

sunnudagur, 12. október 2008

Frumsýningarvika

Jæja þá er loksins komið að því að ég er að fara yfir um. En það er nú bara eðlilegt held ég svona rétt fyrir sýningu.
Helgin var fín. Langt síðan að ég hef verið hérna um helgi. Við "ungu" leikararnir borðuðum saman á föstudagskvöldið og fengum okkur bjór. Það var mikið stuð á okkur og við töluðum og töluðum. Síðan fórum við að hitta Sunnu (sem vinnur í leikhúsinu og er fallegasta kona sem ég hef séð og það eru allir skotnir í henni, líka stelpur) á Kaffi Akureyri. Þar sýndum við hvað við erum klár að dansa. Síðan fórum við Jósa og fundum strákaborð til að setjast á og ég er ekki frá því að ég geti bara sagt hæ við nokkra akureyringa núna. Gott að kynnast einhverjum. Síðan æfðum við á laugardaginn. Eftir æfingu fékk ég smá moral og datt í "oj, ég er ömurlegasta leikkona í heiminum" gírinn. Ég og Sindri ákváðum að fara í bíó að horfa á spennumyndina Righteous Kill með Robert DeNiro og Al Pacino til þess að læra eitthvað. Það var mjög fínt alveg þangað til að Sindri hallaði sér að mér og sagðist vera búin að fatta plottið í myndinni og útskýrði það fyrir mér. Þetta var fyrir hlé og allt sem hann sagði reyndist svo rétt. Var ekki eins spennt eftir hlé...:) En annars verður vikan bara rugl. Erum að æfa á daginn og kvöldin alla næstu viku og síðan sýningin á laugardaginn. Tinna og Garðar ætla að koma og örugglega líka mútta og Jakob. Vona bara að við sláum í gegn með þessari sýningu. En hlakka mikið til að fá þau hingað þrátt fyrir að ég geti nú varla hitt þau mikið en eitthvað kannski. Svo byrja ég að æfa jólaleikritið í næstu viku. Úff já tíminn flýgur....bæjó frá Akureyri.
p.s enþá hefur engin kreppa eða vesen látið sjá sig hérna þannig að ég fylgist bara með fréttunum þegar ég kem heim á kvöldin.


fimmtudagur, 9. október 2008




Já, Eva mín. Hér eru nokkrar myndir. Ég með "nýja" brúna hárið. Jósa með svarta hárið sitt. Hannes og Aðalbjörg sem komu í heimsókn til okkar í gær. Og að lokum eru það bílarnir sem eru stopp til þess að horfa á andanefjurnar á Pollinum. Kom aðeins heim til að leggja mig í smástund. Það er ljósmyndararennsli í kvöld þannig að ég þarf að fá mér fegurðarblund.

miðvikudagur, 8. október 2008

æfa æfa æfa

Jæja núna er bara ein og hálf vika í frumsýningu þannig að ég er bara alltaf að vinna. Ætla mér að skrifa alveg fullt og síðan er aldrei tími til þess. Fer alltaf að horfa á fréttir eða eitthvað annað leiðinlegt þegar ég kem heim á kvöldin. En ég vona að ég fari að fá heimsóknir þegar ég er byrjuð að sýna. En hvað það væri nú gaman. Annars er bara allt gott að frétta. Hárið mitt fékk smá björgun í gær og núna er ég bara orðin brúnhærð...þetta er bara fyndið! Ég þyrfti samt að vera duglegri að mæta í ræktina en það er bara svo gott að sofa aðeins lengur. Núna var ég að koma heim af Karólínu með honum Sindra og það var gott að fara svona smá út...fer alltaf bara heim eftir vinnu. Æfingar ganga bara nokkuð vel...og ég vona að þetta verði besta sýning í heimi!
Góða nótt.
ask

föstudagur, 3. október 2008

fimmtudagur, 2. október 2008

Hárkrísa

Já, nú er ég með hárkrísu í annað skipti eftir að ég flutti hingað norður. Fór í litun áðan fyrir persónuna mína hana Málfríði og þetta er allsvakalegt. Vona að ég geti sett inn myndir á morgun (get það ekki strax því sjokkið er svo mikið). Það er rautt rautt rautt á mér hárið. En það er nú kannski í lagi að hafa áhyggjur af hárinu á sér á meðan allir í Reykjavík eru að hafa áhyggjur af því hvernig allt er að fara til fjandans. Fólkið hérna fyrir norðan er ekki mikið að tala um það en þegar ég tek upp símann og tala heim heyrir maður ekki annað.
Annars er bara allt gott...er ekki að snýta mér jafn oft og í gær.