sunnudagur, 31. ágúst 2008

Frumsýning




Jæja, þá var frumsýningin í gær og alveg fullt hús. Þetta var æðisleg sýning og allt gekk rosalega vel. Krakkarnir voru í stuði og gerðu þetta af fullum krafti. Síðan var skálað í mjólk og súkkulaðikökum. Halli og Gói (fyrrverandi óvitar) mættu á svæðið og hlógu manna mest og það var frábært að heyra í þeim út í sal. Eftir það var ástarganga hérna á Ak og flugeldasýning og karlakór á bát og fullt að gerast. Eftir það fórum við á Græna hattinn þar sem Halli og Gói spiluðu lög. Mikið stuð og allir enduðu á dansgólfinu. Síðan ætluðum við að halda áfram á næsta bar en ég fór bara heim. Fékk skipun frá fallegum manni í Reykjavík að ég ætti að fara heim, annars myndi ég sjá eftir því í dag. Og ég er mjög glöð núna, enda sýning kl. 18 og þá er ekki gaman að vera timbraður.

Set hér myndir af Sunnu og Sigyn sem eru að vinna í leikhúsiu og eru svo sætar, góðar og duglegar. Systir hans Einars kom í heimsókn til að sjá strákinn. Þau eru ekkert smá lík í útliti eins og þið kannski sjáið.
Jæja...nú er ég að fara sigla inn í viku 3 hérna og þetta líður bara ansi hratt....bráðum eru jólin bara komin...er það ekki? Sakna ykkar samt alveg fullt auðvitað.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá hvað þið eruð allar sætar! og auðvitað helga soffía og einar líka ;-) sakna þín fullt og sendi knús á sunnu og sigyn
xx
t

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þetta. Gott að það gekk vel.
Áfram þú
Kv. Lindz