Já, þessi Akureyrardvöl mín byrjar ekki alveg eins og ég var búin að sjá hana fyrir. Ég tók bækur með mér, handrit og spólur og sá fyrir mér að ég hefði endalausan tíma til að drepa. En ég er bara alltaf upptekin og mikið að gera hjá mér...tala nú ekki um það þegar ég á heima við hliðina á Akur-Liljunni (háklassa tískuhús) þá getur manni ekki leiðst. Var samt að hugsa um það í dag...svona í alvöru hvað það væri grautfúlt að drekka ekki kaffi. Bæði er ég mjög sibbin og þreytt hérna..og svo eru alltaf allir að fá sér kaffi, eða skjótast út í pásum að kaupa latte eitthvað. Ég var næstum búin að kaupa mér í dag og ég hugsaði með mér ef ég drekk þetta ógeð bara nógu oft gæti mér farið að finnast það gott. En gerði það nú reyndar ekki, tók ekki áhættuna á niðurgangi svona rétt fyrir rennsli. Kannski þegar ég er orðin stór.
Jæja, frumsýning á laugardaginn og ég hlakka rosalega til. Addi, Kiddi og Soffía ætla svo að koma á þrjú sýningu hjá mér á sunnudaginn sem ég er afar þakklát þeim fyrir. Alltaf skemmtilegra að leika fyrir einhvern sem maður þekkir. Ræktin í fyrramálið þannig að ég segi góða nótt. Skal skrifa eitthvað skemmtilegt næst þegar ég er ekki að sofna fyrir framan tölvuskjáinn. Lofa!
ask
þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já það er merkilega skemmtilegt að geta drukkið kaffi, hef reynsluna þar sem ég byrjaði að drekka kaffi svona í alvörunni fyrir u.þ.b. ári. Þetta er enn ein fíknin til að bæta við áfengis-, reykinga- og nammifíknina. Helst að drekka bæði kaffi og kók light á sama tíma, súpa til skiptis. Helvíti hressandi.
Mæli með að þú byrjir á Swiss Mokka, farir út í veikan Kaffi Latte og sjáir svo til.
Gangi þér vel kv Eva
Skrifa ummæli