þriðjudagur, 2. desember 2008

Ég var að koma inn, var á fundi upp í vinnu. Þegar ég var að fara opna hurðina þá kom maður gangandi til mín og sagði:

"Gistið þér hér?"
"Nei, ég á heima hérna!"
"Afsakaðu, en er þetta ekki gistiheimili? Eru þetta einkaíbúðir?"
"Já"
"Þér eruð ekki innfædd?"
"Nei"
"Afsakaðu, en hvað eruð þér gömul? Ekki eldri en 21 árs vænti ég?
"Jú, ég er 31 árs"
"Já, hérna ég er að vísu með vond gleraugu en ég hélt að ég væri að móðga yður með þessari spurningu, hélt að þér væruð átján ára gömul, mikið heldur þú þér vel" og horfði á rassinn á mér.
"Já, há!"
"Afsakaðu mig en ég er að leita af fólki"
"Þá ættir þú bara að fara upp á Karó"
"Nei, mér var úthýst þaðan eins og öðrum glæpamönnum sem þora að segja sannleikann í þessu þjóðfélagi"
"æi, jæja góða nótt"

Alltaf gaman að láta þéra sig og glápa á rassinn á sér svona á þriðjudagskvöldum.
Hérna er 12 stiga frost og ég geng um hokin með hor í nös. Hlakka til í Janúar þegar fer að kólna almennilega.

7 ummæli:

Anna Pála sagði...

HAHAHAHA, frábært samtal

Nafnlaus sagði...

En huggulegur maður! Var hann 81 árs? Maður á að taka svona hrósi fagnandi;-)

Kv
Lára

Nafnlaus sagði...

Snilldarsaga hjá þér, systir kær. Meira svona!

Nafnlaus sagði...

hahaha ógó fyndið!

Nafnlaus sagði...

Ji, en fyndið.
Er komin heim til Köben. ferðin gekk mjög vel og Lea Dis er draumaferðafélagi. Hlerinn á farangursrýminu á flugvélinni var samt frosinn fastur þegar við komum til Köben og þurftum við að bíða í 2 tíma eftir töskunum!! Ekki alveg sem að maður nennir með ungabarn á arminum. Sem betur fer kann barnið sig í mannmergð og byrjaði bara að hjala þessi ósköp og hlaut mikla athygli fyrir.
Söknum þín
Knús
Lindz og co.

Nafnlaus sagði...

Þér hafið þó ekki verið alein á gangi síðla kvölds? Þér vitið væntanlega að þannig háttalag hæfir ekki ungri einhleypri stúlku.
Yðar
Ásta

Nafnlaus sagði...

vá ég er miklu meira nörd en ég hélt. Ég kann að gera bold , og italic
og bold italic VÓ
Ásta