Gott að þessi helgi sé búin segi ég nú bara. Sýndum 3 sýningar í dag og svo var eitt jólaball í lokin. Krakkar eru svo mikið krútt. Endaði daginn á að fara í bíó með Sindra á jólamynd. Það er allt svo jólalegt allstaðar hérna að það er ekki fyndið og svo jólaböll og jólaleikrit. Ætli ég verði ekki komin með upp í kok þegar jólin koma loksins.
Hér á Akureyri er ég oftast kölluð Anna ekki Anna Svava, það truflaði mig fyrst en núna er ég búin að venjast því.
En svo er ég líka kölluð skofín af Sindra og litla pons af Guðmundi Ólafsyni. Ef einhver getur sagt mér hvernig skofín eða pons líta út þá væri ég alveg til í að þið mynduð segja mér það.
Það er komið á hreint að ég fer í jólafrí 21.des - 2. jan. Ég stefni á að borða mikið, lesa mikið og sofa mikið. Og á milli þess hitta ykkur. Og mikið hlakka ég til. Annars er lífið bara fjandi gott.
sunnudagur, 7. desember 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Frábært hlakka til að fá þig í bæinn!
Kv Eva
Aldrei heyrt hvorugt viðurnefnið Anna mín
Ég held þú getir séð mynd af skoffíni og ponsi á síðunni þinni, beint undir "út í buskanum"....
Annars er skoffín afkvæmi refs og kattar þar sem kötturinn er móðirin. Getur líka þýtt stelputrippi. Veldu bara það sem þér hentar...
Hlaka ógó ógó gógó ógó gógó ógó mikið til að sjá þig, ég er að inrétta svefnherbergisálmuna til að þú getir gist á B31.
Knús - Ásta
Skoffín og pons er bara eitthvað lítið og krúttlegt myndi ég halda..
..svo fer voðalega í taugarnar á mér að vera kölluð bara Anna, fólk hættir því samt oftast þegar það kynnist mér almennilega..
Smá leiðrétting. Ég mætti í vinnuna í morgun og þá sagði Guðumundur við mig (eins og alltaf). "Nei, kemur litla spons!" Þannig að það er spons ekki pons. Skil það samt ekki hahahah!
Jæja. Askurinn bara bloggari ársins,,, magnað
bedste - Á
Skrifa ummæli