Já, fyrirgefðu Ásta mín. Ég er bara búin að vera dugleg að fara í ræktina og sofna þá aðeins fyrr. En nú kemur eitthvað fyrir þig að lesa. Í fyrsta lagi er brjálað veður hérna í dag. Í gærkvöldi þegar ég kom heim var engin snjór á götunum og bara þetta fína veður. Ég vaknaði svo í morgun og fór í opnu svörtu skóna mína og fékk sjokk. Það er bara snjór út um allt og alveg skítaveður. Ég var að koma heim núna og er komin upp í rúm að hlýja mér. Brrr! og oj bara. Helgin var æði. Rakel, Konni og Flóki komu í heimsókn og sáu báðar sýningarnar mínar. Flóki litli fór meira að segja aftur á seinni barnasýninguna líka alveg aleinn, algjör hetja. Eftir laugardagssýninguna skelltum við okkur á Græna Hattinn þar sem Baggalútur var að syngja og það var svo jólalegt og skemmtilegt. Við mættum snemma og náðum borði fremst. Mér finnst Baggalútur svo jólaleg hljómsveit!
Í vikunni er bara búið að vera nóg að gera, fór í Bandý á þriðjudagskvöldið og var í marki en fékk því miður á mig 11 mörk. Ég þarf nú að æfa mig aðeins betur í þessari íþrótt en ég gef þessu sjens bara búin að fara 2var sinnum. Í gærkvöldi fór ég út í Hrafnagil en þar á Sunna (sem vinnur í leikhúsinu) heima. Við borðuðum saman og horfðum á sjónvarpið, voða kósý. Ég held bara að stelpurnar á Karólínu séu farnar að spyrja um mig, hef ekki mætt alla vikuna.
En það gengur þvílíkt vel að æfa Falið Fylgi, góður mórall og gleði. Við erum meira að segja að fara renna öllu fyrir hlé í fyrramálið. Þetta er frábært leikrit, mikill húmor en líka sorg. Gaman að vinna með svona flott handrit. Annars er ég bara farin að hlakka svo mikið til að koma heim um jólin. Kannski þurfum við ekki einu sinni að koma til Ak milli jóla og nýárs ef við náum að vinna þá daga af okkur og þá verð ég heima í alveg 10 daga og þá verður gaman. Ætli ég komi ekki bara ca. 21 des held ég og þá get ég keypt jólagjafirnar í bænum og allt.
Vá, ég hef ekki frá neinu spennandi að segja, dagarnir eru allir frekar svipaðir og lítill frítími. Það er búið að jólaskreyta allt hérna og orðið voða jólalegt. Það er t.d. risa jólastjarna fyrir utan gluggann minn sem hangir hérna yfir aðalgötuna. Ég og Sunna ætlum að splæsa á okkur einkaþjálfara í desember. Okkur fannst það svo góð hugmynd í gær og ég fann þessa fínu konu sem ætlar að koma okkur að. Ég hef ekkert betra að gera við peningana mína...haha!
Endilega kommentið þið og segið mér frekar eitthvað slúður úr borginni.
Linda er komin til Reykjavíkur með Leu Dís litlu og ég get ekkert hitt hana sem er alveg glatað en svona er þetta bara. Jósa og Einar fara yfirleitt heim núna á virkum dögum eða eitthvað annað þar sem þau eru bara að vinna um helgar. Þannig að hópurinn er aðeins minni.
Jæja hafið það gott dúllurnar mínar.
Mættuð þið á borgarafundinn sem var í Háskólabíó? Ég sá hann bara í sjónvarpinu. Bara allt að gerast í Reykjavík!!
ask
fimmtudagur, 27. nóvember 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ætlaði einmitt að fara að skilja eftir eitt svona JÆJA komment, en gaman að sjá nýja færslu. Er að fara á Morfís í skólanum, hitta Ástu Sól í einn öl og svo á tónleika með Jeff Who? með Jódísi, mikið fjör, mikið gaman. Er svo barnlaus fram á fimmtudag þar sem Ölvir er að fara til New York í tvær vikur. Reyni að nýta tímann vel!
Kær kveðja til Akureyrar Eva
vó vó vó...hefur hann efni á að fara til englaborgar...gaman að því. Góða skemmtun.
ask
Skrifa ummæli