Já, nú er ég með hárkrísu í annað skipti eftir að ég flutti hingað norður. Fór í litun áðan fyrir persónuna mína hana Málfríði og þetta er allsvakalegt. Vona að ég geti sett inn myndir á morgun (get það ekki strax því sjokkið er svo mikið). Það er rautt rautt rautt á mér hárið. En það er nú kannski í lagi að hafa áhyggjur af hárinu á sér á meðan allir í Reykjavík eru að hafa áhyggjur af því hvernig allt er að fara til fjandans. Fólkið hérna fyrir norðan er ekki mikið að tala um það en þegar ég tek upp símann og tala heim heyrir maður ekki annað.
Annars er bara allt gott...er ekki að snýta mér jafn oft og í gær.
fimmtudagur, 2. október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Vá hlakka til að sjá hármyndirnar. Dramatík. Núna er allt orðið á kafi í snjó hérna líka, er alveg andskoti fúl út af því, nóg annað að glíma við. Hvað segirðu bara engin kreppa á Akureyri? Merkilegur bær. Alltaf gott veður líka.
Sakna þín
Kv Eva
Skrifa ummæli