sunnudagur, 12. október 2008

Frumsýningarvika

Jæja þá er loksins komið að því að ég er að fara yfir um. En það er nú bara eðlilegt held ég svona rétt fyrir sýningu.
Helgin var fín. Langt síðan að ég hef verið hérna um helgi. Við "ungu" leikararnir borðuðum saman á föstudagskvöldið og fengum okkur bjór. Það var mikið stuð á okkur og við töluðum og töluðum. Síðan fórum við að hitta Sunnu (sem vinnur í leikhúsinu og er fallegasta kona sem ég hef séð og það eru allir skotnir í henni, líka stelpur) á Kaffi Akureyri. Þar sýndum við hvað við erum klár að dansa. Síðan fórum við Jósa og fundum strákaborð til að setjast á og ég er ekki frá því að ég geti bara sagt hæ við nokkra akureyringa núna. Gott að kynnast einhverjum. Síðan æfðum við á laugardaginn. Eftir æfingu fékk ég smá moral og datt í "oj, ég er ömurlegasta leikkona í heiminum" gírinn. Ég og Sindri ákváðum að fara í bíó að horfa á spennumyndina Righteous Kill með Robert DeNiro og Al Pacino til þess að læra eitthvað. Það var mjög fínt alveg þangað til að Sindri hallaði sér að mér og sagðist vera búin að fatta plottið í myndinni og útskýrði það fyrir mér. Þetta var fyrir hlé og allt sem hann sagði reyndist svo rétt. Var ekki eins spennt eftir hlé...:) En annars verður vikan bara rugl. Erum að æfa á daginn og kvöldin alla næstu viku og síðan sýningin á laugardaginn. Tinna og Garðar ætla að koma og örugglega líka mútta og Jakob. Vona bara að við sláum í gegn með þessari sýningu. En hlakka mikið til að fá þau hingað þrátt fyrir að ég geti nú varla hitt þau mikið en eitthvað kannski. Svo byrja ég að æfa jólaleikritið í næstu viku. Úff já tíminn flýgur....bæjó frá Akureyri.
p.s enþá hefur engin kreppa eða vesen látið sjá sig hérna þannig að ég fylgist bara með fréttunum þegar ég kem heim á kvöldin.


4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ekki fara yfir um. Bara vinna vinnuna og njóta þess. Ekkert að vera að flækja það fyrir sér.
Poj, poj og knús,
Maja

Nafnlaus sagði...

Knús á þig elskan mín. Gangi þér rosa vel, toj toj toj og break a leg. Flott með brúna hárið sæta :)
Elín.

Anna Pála sagði...

Splæstu á þig nuddi í kreppunni eða plataðu einhvern til að nudda þig fyrir sama greiða á móti, best við stressi :-) Gangi þér vel sætamús!

Nafnlaus sagði...

btw. Þú ert ógessla góð sem Elín Birna í Svörtum Englum. Er kellingin bara að slá í gegn allsstaðar?