...nú er lífið að færast aftur í fastar skorður. Frumsýningin búin og það gekk bara ljómandi vel hjá okkur. Fólk var ánægt og skemmti sér vel. Nú tekur bara við að sýna 6 sýningar á viku og svo var ég að byrja að æfa jólaleikritið. Ég fór á samlestur á miðvikudaginn og það er langt síðan að ég hef komist í jafn mikið jólaskap. Þetta er alveg fáranlega sætt og jólalegt leikrit. Ég er í fríi í dag til klukkan 18 og ætla að nýta daginn til þess að kúra upp í rúmi, borga reikninga, fylla út vinnuskýrslu og gera ekkert. Það er oft gott.
Á miðvikudagskvöldið tókum ég og Sindri smá skyndiákvörðun og fengum bílinn lánaðan hjá Denna og brunuðum á Laugar til þess að sjá leiksýninguna "Sá Ljóti" en það var smá hálka og við lögðum kannski pínu seint af stað en þegar við komum var búið að læsa og við misstum af sýningunni. Glatað. En við brunuðum bara aftur í bæinn á Karó og svo komu Viggi og co til okkar og við skemmtum okkur mjög vel. Við enduðum hérna heima í H100 í svaka dansi og matarpartý langt fram á nótt. Gott að sletta úr klaufunum á virkum degi...alltaf skemmtilegra.
En hér er veturinn komin og snjór yfir öllu. Nú bíð ég bara eftir að skíðasvæðið opnar og ætla fara vera fastagestur í brekkunum.
Ásta vinkona mín á afmæli í dag og óska henni til hamingju með það.
Annars líður tíminn hérna mjög hratt og mér finnst bara eins og jólin koma á morgun.
föstudagur, 24. október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Vá, öfunda þig að geta farið á skíði oft í vetur. Ég kem heim til Íslands 24.nóv til 3. des. Er einhver smuga að þú verðir í Reykjavík þá? Langar svo ótrúlega mikið að hitta þig snúllan mín.
Er alltaf að hringja heim til þín en þið aldrei heima.
Viltu senda mér símann aftur á maili svo að ég sé örugglega með þetta rétt.
Sakni sakn.
Linda
Skrifa ummæli