laugardagur, 8. nóvember 2008

Ef maður passar ekki í þröng há stígvél er gott að leggjast á gólfið og setja lappirnar upp þá passar maður í stígvélin (yfirleitt). Lærði þetta í sumar.
Síðan ef maður heldur að veturinn sé komin og fer að kaupa sér kuldaskó þá oft hættir veturinn við. Sem er bara gott í flestum tilfellum.
Ég fæ stóra heimsókn næstu helgi og hlakka til.
ask

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hei, takk fyrir tískuráðgjöfina. Vona að það gangi vel hjá þér snúllan mín.
Knús frá Köben
Linda og co.

Anna Pála sagði...

Takk fyrir ráðið, prófa þetta næst því ég á massaflott stígvél sem tengdó gaf mér sem eru því miður smá þröng. Samt alltaf þegar ég treð mér í þau finnst mér eins og beljurnar séu algjörlega að kremjast og drepast, og allt blóðflæði í meira lagi heft :-)

Já og svo er vetrarskódæmið alveg eins og þegar ég er að gædast. Alltaf þegar ég fer í górítexbuxurnar hættir nefnilega að rigna, þannig að ég þori venjulega ekkert úr þeim þegar ég er á annað borð komin í þær.