mánudagur, 17. nóvember 2008

Helgin





Já, því miður leið helgin allt allt of hratt. Eva mætti til mín á föstudaginn um 2 leytið og var með mér í vinnunni. Hún náði að sjá rennsli á jólaleikritinu og bara vera með mér þangað til að ég fór að sýna Músagildruna. Það var skemmtilegt og skrýtið að hafa hana allt í einu þarna. Fannst eins og ég þurfti að sýna henni allt...eins og ég væri í úlöndum eða eitthvað! Síðan mætti restin á fyrsta bekk og ég sá þau bara þegar þau voru að klappa. Var mjög stressuð fyrir sýningu og spennt að hitta þau. Eftir sýningu fórum við í íbúðina sem Jón Þór og Gummi voru með í láni. Pizza og kjafta.
Á laugardaginn gerðum við þvílíkan morgunmat hérna í H-100, egg og beikon og kökur og tilheyrandi. Verst var að greyið Jón Þór og Gummi þurftu að fara í súpu beint á eftir og svo beint í pönnukökuboð...eru víst enþá saddir. Á laugardagskvöldið fóru þau að sjá Villa naglbít á tónleikum í höllinni og við mættum bara í partýið eftir tónleikana. Glatað að þurfa að missa af þeim. Laugardagskvöldið var tekið með með trompi og dansað fram á nótt. Oh svo gaman! :) Var alveg með í maganum þegar þau fóru svo á sunnudaginn. Svona eins og að fá pakka og síðan þurfa að skila honum. En eitt er víst, ég á bestu vini sem hægt er að óska sér eða ímynda sér. Og nú er bara næstum því mánuður í jólin. Þetta líður voða hratt.
Gummi fær rokkprik fyrir peysuna sem hann var í á laugardaginn.
Eva fær heiðursprik fyrir að endast lengi.
Ég fæ prik fyrir að koma með eina góða sögu.
Jón Þór fær 3 venjuleg prik fyrir tunguna á sér.
Ásta fær 1 prik fyrir að ná lengst á spjalli og 9 prik fyrir tækni og skemmtihæfileika.

Sindri spurði mig áðan þegar við vorum eitthvað að láta okkur leiðast hvort að ég vildi fara í strákaleik. Og ég sagði auðvitað já. Og þá átti ég að raða upp draumaliðinu mínu í fótbolta. Allt má....og hér er það:
þjálfari: Atli Helgason
nuddari: kínakarlinn á Skólavörðustíg
þýðandi: Gísli Rúnar (nokkur tungumál í gangi)

Markmaður: Hannes Halldórssón (því hann er bestur)
vinstri bak: Sindri Birgisson (getur farið á milli lappana á hinum og dregið að sér athygli)
hægri bak: Matthew McConery (bara fyrir mig)
bakvörður: Auðun Helgason (góður og vinnur vel með Hannesi)
bakvörður: Guðni Bergsson (kann svona gömul og góð trix)
vinstri kantur: Magnús Guðmundsson (getur farið í heljarstökk og þannig)
hægri kantur: Hannes (leikari) (bara góður)
miðjumaður: Dóra María Lárusdóttir (augljóst, kann að spila og ég þekki hana smá)
miðjumaður: Jón Páll Eyjólfsson (getur orðið alveg geðveikur)
sóknarmaður: Davíð Guðbrands (stelpur mæta á völlinn)
sóknarmaður: Ronaldo (sér um að spila fótboltann)

þetta var nú bara það fyrsta sem kom...er strax til í að fara kaupa nýja inn og skipta út. Sindri og Jón Gunnar gerðu líka lið. Ætla að spyrja þá í fyrramálið hvort að ég megi birta þau. Þá gætuð þið kannski sagt hvaða lið þið hélduð að myndi vinna og þannig.

Myndir úr partýinu eftir tónleikana. María Heba og Krissi komu líka á leikritið á laugardaginn. Það var æði að fá þau. Maður er alveg endurnærður!
Góða nótt

7 ummæli:

Anna Pála sagði...

En gaman að var gaman hjá ykkur litlusystur! Alveg magnað hvað þessi fallega stúlka sem er með henni á myndinni er lík mér! Ýkt flott og sniðug efsta myndin af þér nafna, knúsknús

Nafnlaus sagði...

You must have meant Matthew McConaughey. Right!?!

Matt

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir æðislega helgi elsku Askur
sakniknús frá RVK - Ásta

Nafnlaus sagði...

Hey þú ættir náttla að hafa eina stelpu í fótboltaliðinu, bæði vegna þess að þær eru miklu flinkari en strákarnir (hvort landsliðið er að ná betri árangri??? döh) og svo líka þá getur stelpan í þínu liði truflað alla andstæðingana með því að sýna á sér brjóstin á ögurstundu...
góð hugmynd frá RVK myndi ég núbarasegja
Ásta

Nafnlaus sagði...

döh...það er stelpa í mínu liði....lesa þetta betur ásta mín. Bæði er hún massa sæt og svo er hún líka í landsliðinu. En ekki lengur. Hún er komin í mitt lið.
ask

Nafnlaus sagði...

úff já vandræðalegt hjá mér.. sjitt. - Á

Nafnlaus sagði...

og þú og Jósa fáið rokkprik fyrir lagið mikla og öll skemmtiatriðin sem við nutum á leiðinni norður - já og auðvitað færðu líka svona 126 rokkprik fyrir að vera þú!:)
jón þór