miðvikudagur, 24. september 2008

Jæja, er búin að vera löt við að skrifa. Hér er alltaf nóg að gera og ég var að koma heim af pub-quiz sem var alveg stórskemmtilegt að vanda.
Fórum út í Hrísey í gær þar sem Alli Bergdal tók þvílíkt vel á móti okkur og keyrði okkur um í vagni sem var fastur við traktorinn hans. Síðan talaði hann allan tímann og sagði okkur alveg stórmerkilega hluti um eyjuna...kannski var það ekki allt alveg satt en það skiptir nú minnstu máli. Síðan fórum við í búð, hvalasafn og inn á gamalt heimili sem er búið að breyta í safn. Eftir það fórum við heim til Alla og þar fengum við Hvannarrótarsúpu sem hann bjó til. Þetta var alveg frábær ferð og við vorum öll rjóð og útitekin eftir hana.

Við komust loksins inn á sviðið í dag til að æfa. Við höfum verið að æfa í dansskóla hingað til því að það þurfti að byggja leikmynd og rífa þá gömlu niður og við máttum ekki vera fyrir smiðunum. Það var mikill munur að komast á sviðið og þetta er allt farið að taka á sig mjög góða mynd. Ég hlakka alltaf til þess að mæta í vinnuna. Góður mórall og frábær leikstjóri. En núna bíður mín vinnuskýrsla til þess af fylla út fyrir morgundaginn þannig að ég ætla að demba mér í það mál núna.
Mamma er svo að fara frumsýna mydina sína "Þetta kalla ég dans" á föstudaginn þannig að ég sé ykkur um næstu helgi...vá fimmtudagur á morgun. Tíminn líður svo hratt!
góða nótt
ask

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ, vona að þú sért ekki veik. Hafðu það gott.
Kv. Linda