Það eru nokkrir hlutir á Akureyri sem eru einfaldlega æðislegir.
1. Brynjuísinn er alveg fáranlega góður.
2. Kurteisir bílstjórar, hér er hægt að ganga út á götu og vera viss um það bílarnir stoppi fyrir þér.
3. Besta og flottasta sundlaug á landinu. Gott að synda þar og pottarnir unaðslegir.
4. Næstum hvar sem maður er blasir við stórbrotið útsýni með fjöllum og fallegum litum.
5. Gott leikhús að sjálfsögðu.
Svo er annað sem mætti vera betra.
1. Akureyringar er svoldið lokaðir þegar kemur að utanbæjarpakki, kannski nennir það ekki að kynnast okkur því það veit að við munum að lokum fara?
2. Brekkur...úff púff. Finnur fyrir því að hvert sem maður gengur er maður oftast að ganga upp í móti.
3. Opnunartími verslanna mætti vera lengri.
4. Út í hött dýrt að fljúga hingað.
5. Hér eru göturnar ekki saltaðar, þannig að það getur verið eftitt að keyra og ganga hér um í t.d. janúar.
Annars er helgin búin að vera fín. Sýningar föst, laug og sunnud. Fool for love krakkarnir, Svenni, Þóra og Maggi komu og voru að byrja að æfa sig í Rýminu. Þau munu sýna hér næstu 2 eða 3 helgar og uppselt á allt hjá þeim sem er frábært. Svenni og Maggi komu á sýninguna í gær og fannst voða gaman.
Oj, ég er með bólgið auga / augnlok og ég held að það sé út af sminkinu sem maður er að troða í andlitið á sér eða bara þreyta. Ég tók 2 myndir í gær á Karólínu (kaffihúsið sem við erum alltaf á), þetta er ég og Jósa sem var að koma beint úr réttum með fjölskyldunni sinni. Og Einar, Svenni og Maggi.
Hinn yndislegi, óviðjafnanlegi, fallegi, skemmtilegi og ómissandi vinur minn hann Jón Þór á afmæli í dag. Til hamingju með það og ég vildi að ég gæti komið og knúsað þig. Gummi gerir það kannski fyrir mig.
4 ummæli:
Oh hvað ég sakna þín mikið sætan mín, verð að koma í heimsókn um leið og ég get...svei mér ef ég sakna ekki bara akureyri pínu líka...þú slærð ryki í augun á mér hahaha! Það er GEÐVEIKT gaman í Borgó!! og svo get ég alltaf sofið í rúminu mínu! ...en það er engin anna svava í næsta húsi :-(
Knús til þín, Jósu, Magga, Svenna, Þóru, Einars, Viktors, Sigyn, Sunnu, Jóns Gunnars o.s.frv. ;-)
T
Talaðu bara um hvað veðrið fyrir norðan sé alltaf hundrað sinnum betra en í Reykjavík, þá eignastu örugglega fullt af akureyrskum bestu vinum. Já Brynjuís mmmmmm
Hæ Anna Svava, gaman að finna bloggið þitt, nú verður maður áskrifandi af Akureyrískum fréttum ;)
Bestu kveðjur Ósk
Ps: passaðu þig bara að fá ekki hreim, gott að gera Reykvískar talæfingar í sturtunni að lágmarki þrisvar yfir vikuna. Gott gengi.
Shit hvað þið eruð gebbó fagrar! Ójbara!!
Knús,
Maja
Skrifa ummæli